Á Jónsarablóti með létta lund

Það var fjör að vanda á Jónsarablóti þegar komið var saman hjá Gísla og Emmu. Þetta var  tuttugasta árið í röðinni sem blótið var haldið og á sama stað núna og það var í fyrsta sinn. Auðvitað voru myndaalbúm með  til að sýna söguna.Jónsarablót 07 002

 Hlaðið borð að vanda af þorramat, góð stemmning, hátt var hlegið og slegið á létta strengi.  Gísli tók á móti gestum með frosinn drukk sem gleyptur var í skyndi og síðan skundað að þorraborðinu. Móðir vor byrjaði að vanda og fékk sér nettan skammt á diskinn. Síðan kom hver af öðrum, Mummi og Lára ásamt Óla en Lára stríðir við öklabrot. Siggi og Esther voru ein því afkvæmin voru vant við látin, Dúdda var sein og Maggi  með henni en hún kom af söngæfingu í Skálholti, Gísli var mættur  og Emma með matinn, Edda Ósk og Davíð og svo kom Sævar með Halldóru sína. Svo komu synir Sigríðar, Davíð Örn með Huldu og Jón Trausti með Hrafnhildi en Sigríður var á skíðabrekkum Mamma fær sér skammtAusturríkis en þar ku víst vera rigning. En hvað um það svo kom Kári með Aron sem er stærri en hann en Kristjana var með flensu og Gunni var mættur með Önnu Fríðu án afkvæma en nýbúinn að byggja hús á Skeiðunum og orðinn sannur Skeiðamaður. Nú þarf að finna nafn á hús hans og verður það nefnt Gunnarshólmi því von er á miklu Landsvirkjunarlóni þar rétt hjá. Svo kom Ásmundur skálmandi  með Möggu sína en hann var sigurvegari kvöldsins, mætti með fullt hús fjölskyldumeðlima, Önnu Hlíf með Fróða og Thelmu með Jón.

Eftir átið var farið í leiki en Emma var að vanda klár með málshætti víða að sem voru lesnir með tilþrifum.  Sögur voru sagðar og kerskni viðhöfð eins og vera ber. Svo var farið í vígsluleik en þá taka bara nýliðar þátt og þeir sem skriðnir eru yfir aldursmörkin sem eru 16 ár. Nú voru það fjölskyldumeðlimir Ása og Davíð sem máttu reyna sig í bangsaleiknum hennar Estherar.  Kári var sögumaður, nýkominn frá Skotlandi og klæddist að hætti Hálandahöfðingja, í pilsi, ber innanundir, með loðna leggi og húfu á höfði. Las hann skýrt og greinilega og mikið fjör í leiknum.  Þóttu leikararnir standa sig vel.

Síðan stilltu bræðurnir sér upp í glímustöðu og hlógu hátt með góðri opnun. Í undirbúningi var að Bræðurnir fara til Skotlands  og heimsækja Kára og Kristjönu. Haft var á orði að bræðurinir fengju sér viðhafnarbúning skoskan í þeirri ferð til að klæðast á þorrablótum, pils með beru innanundir og pung framaná, húfu, skyrtu og sekkjapípu handa Gísla því hann kann að blása í túbu. Síðan var haft í flimtingum að keppa þyrfti í Hálandagreinum á skoskri grund í þessum búnaði, staurakasti og ölþambi.  Hljóp nokkurt kapp í mannskapinn sem birtist með miklu og háværu masi og hlátrasköllum að hætti ættarinnar.  Ekki verður þó úr þessari vorri ferð því hún seldist upp og verður að bíða betri tíma sem verður notaður til að skipuleggja hana enn betur og allar þær keppnisgreinar sem teknar varða upp. Tekin var æfing í að klæðast pilsi Kára svona til að öðlast tilfinninguna. Riðu þeir á Bangsaleikurinn og Hálandahöfðinginnvaðið Gísli og Ási enda frakkir menn og ákafir í anda, aðrir urðu hvumulegir við pils þetta enda ekki aldir upp við að klæðast pilsum. Þurfa lengri tíma.

Leið nú að miðnætti og þeim tíma þá móðir vor stendur upp og segir jæja, snarast í kápu og heldur til dyranna. Hvur keyrir mig, segir hún og Mummi hljóp undir þann bagga með glans. 

 Mikið var síðan skeggrætt og skrafað fram á nóttina. Var Gísli gestgjafi í essinu sínu og blandaði geði með góðri lund, tók utan um konur og var glettnin uppmáluð. Er hann manna fremstur í þessari grein og geldur engrar afundar annarra enda söngmaður góður þó ekki tæki hann lagið.Gísli mátar SkotapilsiðÁsi í skoskri stöðu

Emma var vel í verkum sínum reiddi fram hvaðeina, kaffi og konfekt ásamt öðru góðgæti. Öllu þessu fylgdi svo hin dillandi létta lund þar sem allt er sjálfsagt.

Er nú nógsamlega bloggað um blót þetta og hugað að góðri tíð og tækifærum sem framundan eru. Eru allir um þáð sammála að mikilvægt er lífsandanum að styrkja og efla fjöölskyldutengsl vor því þar blómstrar kærleikurinn. Heitum vér góðri mætingu á næsta blóti og öllum þeim samkomum er vér köllum til, stórum og smáum í heimahúsum eður á víðavangi. Kærar kveðjur til þeirra ættmenna sem blogg þetta lesa.

Lifið heil og létt í andaÁsi og fjölskylda.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þakka gott blót, gaman að sjá alla. Ég var komin með illt í kinnarnar eftir að hlátursbrosið festist á í 3 klst:) Nú skunda ég alsæl á austurlandið

kv.Edda ósk

Edda ósk (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 12:32

2 identicon

Greinilega verið mikið fjör og mikið gaman að vanda .  Kári tekur sig einstaklega vel út í skotapilsinu og rauða hárið fer honum einnig mjög vel......minnir mann að vísu aðeins á Bjarna Fel hahahahahaha

Kv. frá Kanada

Sigga Rós (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 16:39

3 Smámynd: Kristjana Kjartansdóttir

Alltaf sama fjörið, slæmt að liggja í flensu og missa af öllu saman. Takk fyrir skemmtilegt blogg...næstum eins og að vera með ukkur.....

Bestu kveðjur frá okkur hér í Edinborginni, Kristjana 

Kristjana Kjartansdóttir, 19.2.2007 kl. 13:06

4 identicon

Skelkaður  Svakalega var leiðinlegt að ná ekki að vera með á blótinu, það mun ekki koma fyrir aftur !!!!!   Hefur greinilega verið gaman að vanda enda með eindæmum skemmtilegt fólk saman komið.    Sjáumst vonandi sem fyrst.  kv. Didda

Sigríður (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband