27.10.2007 | 15:44
Við kanínubúskap hjá Elfu Rún og Esther Ýr
"Er afi heima," sagði rödd í símanum í morgun og Esther sagði sem var að afi væri einhverstaðar úti. "Heldurðu að hann geti farið og gefið kanínunum," sagði röddin sem var Elfa Rún Óskarsdóttir kanínubóndi í Sigtúninu þar sem hún elur kanínur í bílskúrnum ásamt Esther Ýr systur sinni. Þarna er myndarleg kanína með fjóra fallega unga.
Auðvitað fór afi með gómsætt kál og gaf dýrunum ásamt því að sópa saman mestu óreiðunni hjá greyjunum. Þær tóku vel til matar síns og drukku okkar tæra vatn. Síðan var kanínubændunum sent sms um að allt væri undir kontról hjá kanínunum. Auðvitað verður kíkt á kanínurnar aftur og húsið vaktað um leið.
Á myndinn i má sjá kanínurnar gæða sér á gómsætu kálinu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.